SKALLAGRÍMUR – KR í Laugardalshöll í kvöld

september 27, 2007
KR-ingar sigruðu Hamar í 8-liða úrslitum Powerade-bikarsins og eru því komnir í undanúrslit.
Þeir mæta þar Skallagrímsmönnum sem hafa lagt Stjörnuna og Grindavík í keppninni. Það verður leikið um sæti í úrslitaleiknum í Laugardalshöllinni í kvöld kl. 19:00.
Njarðvík sigraði ÍR í Ljónagryfjunni með 87 stigum gegn 80 og mæta þær Snæfellingum í undanúrslitum.
Jovan Zdradvevski fyrrum stjörnuleikmaður Borgnesinga hefur sem kunnugt er gengið í raðir KR-inga. Það verður því áhugaverð rimma í kvöld, þar sem hann mætir sínum gömlu vinum úr Borgarnesi.
 

Share: