Skallagrímur á fullri ferð

janúar 7, 2010
Árið byrjar með látum í körfuboltanum þegar toppliðin mætast í Borgarnesi. Næstkomandi föstudag, 8. janúar, mætir Skallagrímur liði Hauka í íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi. Leikurinn hefst kl. 19.15 og eru stuðningsmenn Skallagríms hvattir til að fjölmenna og styðja sína menn.
Ýmsilegt fleira er framundan hjá Skallagrími. Nytjamarkaðurinn í Brákarey opnar að nýju um næstu helgi, harðfisksala er framundan og þorrablót verður haldið í febrúar svo eitthvað sé nefnt. Auglýsingu frá félaginu má nálgast hér.
 

Share: