Sirkussýning á Varmalandi 19. júní – Allra veðra von

júní 18, 2021
Featured image for “Sirkussýning á Varmalandi 19. júní – Allra veðra von”

Allra veðra von er nýsirkussýning Hringleiks þar sem sirkuslistin er notuð til að skoða tengsl mannsins við veðrið.

Sýningin er myndræn og hrífandi fyrir áhorfendur á breiðum aldri óháð tungumáli. Akróbatík, áhætta, grín og glens, ljóðrænar myndir og loftfimleikar flétta saman sögur af mönnum og veðri.

Frá upphafi hefur veðrið verið stærsti örlagavaldur lífs á norðlægum slóðum. Gjörvöll menning Íslendinga er sannarlega lituð af áhrifum þessa fyrsta og síðasta umræðuefnis landans og þegar litið er til framtíðar er ekki hjá því komist að horfast í augu við veðrið og tengsl okkar við það.

Hringleikur frumsýndi Allra veðra von í Tjarnarbíói í vor og sýnir verkið utandyra víðsvegar um landið í allt sumarið, meðal annars Varmalandi 19. júní nk. Sýningin hefst kl. 18:00 og hægt er að nálgast miða hér

Nánari upplýsingar um viðburðinn er að finna hér


Share: