Signý María frá Óðal komst áfram í undankeppni Samfés.

febrúar 22, 2019
Featured image for “Signý María frá Óðal komst áfram í undankeppni Samfés.”

Miðvikudaginn 19.febrúar fóru sextíu vösk ungmenni úr Borgarbyggð til Ólafsvíkur að horfa á undankeppni Vesturlands fyrir söngvakeppni Samfés. Óðal sendi tvö atriði en það voru þau Reynir Jóngeirsson sem tók lagið Draumur um Nínu og svo Signý María Völundardóttir sem söng lagið Make you feel my love með Adele. Signý María komst áfram ásamt tveimur strákum sem sungu frumsamið rapplag og eru þeir frá Ólafsvík. Þau munu koma fram á stóra sviðinu í Laugardalshöll þann 23.mars næstkomandi, sú keppni er einmitt í beinni útsendingu á RÚV.

Innilega til hamingju Signý María, frábær flutningur og erum við ótrúlega stolt af þér. Hlökkum til að fylgjast með þér í Laugardalshöllinni og í framtíðinni.


Share: