Sigga Dóra nýr starfsmaður í ungmennahúsinu

nóvember 8, 2005

Nýr starfsmaður hún Sigga Dóra hefur tekið við af Guðmundi Skúla í Mími ungmennahúsi og hvetjum við öll ungmenni á aldrinum 16 – 25 ára að koma í Mími til að tala við Siggu um starfsemina í ungmennahúsinu og koma endilega með hugmyndir sem hægt er að nýta í innra starfið þar. Ný stjórn hefur tekið við og leiðir Hafþór Gunnarsson húsráðið í vetur. Margir hafa komið í heimsókn í húsið í vetur það sem af er og gott fyrir þennan aldur að hafa einhvern stað fyrir sig að hittast á og spjalla.
Nemendafélag G.B. hefur boðið ungmennum í Mími að vera með þátt í Jólaútvarpi Óðals í desember til að kynna starfsemi í ungmennahúsinu og er næsta víst að þarna verður öflugur þáttur enda mörg ungmenni í Mími vön útvarpsvinnu úr Óðali.
ij.

 

Share: