(Sauða)Messuboð

október 5, 2010
Fréttatilkynning:
Sannlega segjum við yður að Sauðamessa 2010 verður haldin með viðhöfn á laugardaginn kemur, þann 9. október anno domini 2010.
Messuhald hefst með fjárrekstri frá Dvalarheimili aldraðra klukkan 13.30 að staðartíma. Hámenntaðir rekstrarfræðingar munu stýra rekstrinum rétta leið í réttina sem er rétt hjá Skallagrímsgarði. Viljum vér messuhaldarar biðja fólk að verja heimalönd sín á leið þeirri er féð rennur, það er að segja, frá Dvalarheimili aldraðra og niður að Skallagrímsgarði.
Skömmu síðar hefst helgihald til heiðurs sauðkindinni í garði Skallagríms. – Ærlegt fjör á sviðinu en þar stíga meðal annars á stokk heimaaldir söngvarar og aðrir skemmtikraftar. Heiðursgestur er Guðbjartur Hannesson ráðherra.
Allskyns uppákomur í og við garðinn. Gangnahestarnir verða á sínum stað og réttarstemningin svífur yfir vötnum. Keppt verður í því að teygja lopann, skítkasti, blóðmörsvarpi, hjólbörurallíi ofl. ofl. Ekki má gleyma hinu sívinsæla lærakappáti en þar munu nýir lærlingar etja kappi við hinn ósigraða margfalda meistara Baldur Jónsson. Hingað til hefur engum tekist að éta hann út á gaddinn en hvað gerist í ár.
Fjöldi sölubása með kindarlegar vörur verða í tjöldum í garðinum og allir eiga að geta fengið eitthvað við sitt hæfi. Ef ekki þá eru þeir á vitlausum stað.
SAUÐAMESSUBALL
Hið sívinsæla sauðamessuball verður að messu lokinni laugardagskvöldið 9. október. Vegna allavega tveggja áskorana verður það haldið á sínum stað í Reiðhöllinni klukkan 22.00
Hin sauðsvarta hljómsveit (fjár)Festival leikur fyrir trylltum dansi. Ærlegur klæðnaður er skilyrði fyrir inngöngu.
Aðgangseyrir kr. 2.500.
Sætaferðir frá Hyrnunni í boði Sæmundar frá kl.22.00
Vinir og vandamenn Sauðamessu
 
 

Share: