Samráðsfundur um þjónustu við fólk með fötlun

maí 5, 2014
Velferðarnefnd Borgarbyggðar hefur áhuga á að skoða hvað má betur fara í þjónustu við fólk með fötlun.
Í þessu augnamiði er boðað til samráðsfundar þriðjudaginn 6. maí kl. 16.00 í salnum á efstu hæð á Borgarbraut 65a (háa blokkin bak við Heilsugæsluna). Þeir sem nota þjónustuna vita best hvaða breytinga er þörf og eru notendur og foreldrar og aðrir aðstandendur sérstaklega hvattir til að mæta.
Fundurinn er öllum opinn.
Velferðarnefndar Borgarbyggðar
 

Share: