Samið um starfslok forstöðumanns Safnahúss

september 27, 2021
Featured image for “Samið um starfslok forstöðumanns Safnahúss”
Gert hefur verið samkomulag um starfslok við Guðrúnu Jónsdóttur forstöðumann Safnahúss. Lilja Björg Ágústsdóttir, forseti sveitarstjórnar Borgarbyggðar og Guðrún rituðu undir samkomulagið síðdegis á föstudaginn sl. en það verður lagt fyrir næsta sveitarstjórnarfund til staðfestingar.

Guðrún hefur þegar látið af störfum en hún hefur starfað fyrir sveitarfélagið síðan árið 2006. Guðrúnu er þakkað fyrir hennar störf í þágu sveitarfélagsins og óskað velfarnaðar í framtíðarstörfum.

 

 


Share: