Samhugur í Borgarbyggð

desember 1, 2022
Featured image for “Samhugur í Borgarbyggð”

Undanfarin ár hafa íbúar í Borgarbyggð tekið höndum saman og safnað fyrir einstaklinga sem þurfa stuðning og aðstoð í kringum jólahátíðina. Verkefnið var endurvakið í ár og tekur hópurinn Samhugur í Borgarbyggð á móti jólagjöfum, gjafabréfum og matarpökkum á skrifstofu Kaupfélags Borgfirðingar í Borgarnesi. Einnig geta jólasveinar fengið aðstoð.

Ekki er þörf á því að pakka inn gjöfunum en æskilegt er að merkja viðeigandi aldur viðtakanda. 

Nánari upplýsingar er að finna á Facebooksíðu verkefnisins, sjá hér.

Þeir einstaklingar sem vilja sækja um styrk geta sent póst á netfangið samhugur@samhugur.is.


Share: