
Fimmtudaginn 18.09. 2025 verða opnar kjördeildir Borgarbyggðar í Félagsheimlinu Lindartungu Lindartungukjördeild, Félagsheimilinu Þinghamri Varmalandi , Þinghamarskjördeild og Grunnskólanum Kleppjárnsreykjum Kleppjárnsreykjakjördeild. Í Lindartungu verður opið milli 18:00 og 20:00. Í Þinghamri og Kleppjárnsreykjum mun vera opið á milli kl 16:00 og 20:00.
Þennan dag (18.09) er opið í Ráðhúsi Borgarbyggðar milli 12.00 og 14.00 en þá einungis fyrir Borgarneskjördeild og í Laugabúð fyrir íbúa Skorradals klukkan 16.00-18.00.
Föstudaginn 19.09. er svo opið fyrir allar kjördeildir Borgarbyggðar í Ráðhúsi Borgarbyggðar milli 12.00 og 14.00.
Laugardaginn 20.09. er lokakjördagur og er opið í Hjálmakletti Borgarnesi fyrir allar kjördeildir Borgarbyggðar frá klukkan 10.00 – 18.00.
Sama dag, 20.08 og á sama tíma er opin kjördeild í Laugabúð fyrir íbúa í Skorradal.