Forsala bókarinnar Saga Borgarness hefur farið vel af stað og fjölmargir pantað bókina. Þeir sem hafa pantað hana hafa fengið senda greiðsluseðla og krafa er komin inn í heimabanka þeirra.
Þeir sem greitt hafa bókina fyrir eindaga fá hana afhenta á hátíð sem haldin verður í tilefni af 150 ára verslunarafmæli Borgarness sem fram fer í Hjálmakletti 29. apríl n.k.