Safnahús lokað vegna jarðarfarar Egils Ólafssonar

febrúar 9, 2015
Í dag, mánudaginn 9. febrúar verður lokað í Safnahúsi Borgarfjarðar vegna jarðarfarar Egils Ólafssonar blaðamanns. Egill hóf störf við ritun sögu Borgarness fyrir réttu ári síðan og var með starfsaðstöðu í Safnahúsi.
Þar hans nú minnst með hlýhug sem góðs félaga og vandaðs manns sem vann verk sitt af stakri samviskusemi og alúð. Starfsfólk Safnahúss sendir fjölskyldu hans innilegar samúðarkveðjur.
Myndina tók Guðrún Jónsdóttir af Agli við störf.

 

Share: