Safnahús Borgarfjarðar – sumarstarf 2009

febrúar 18, 2009
Safnahús Borgarfjarðar_ mynd GJ
Safnahús Borgarfjarðar auglýsir eftir starfsmanni í sumarafleysingar. Um er að ræða störf á bókasafni og við sýningarvörslu, þrif og fleira. Viðkomandi þarf að vera orðinn 18 ára, vera samviskusamur og hafa góða og vandaða framkomu ásamt ríkri þjónustulund. Mikilvægt er einnig að eiga auðvelt með samskipti og geta auk íslensku haft ensku vel á valdi sínu. Annað tungumál og almennur áhugi á bókmenntum og sögu er kostur.
Helstu tölvuforrit: Outlook og Word(Exel). Umsóknir ásamt ferilssskrá óskast sendar á gudrunj@borgarbyggd.is fyrir 1. mars n.k.
 
 

Share: