Réttardagar í Borgarbyggð

ágúst 24, 2010
Frá Grímsstaðarétt haustið 2009
Bændasamtök Íslands hafa birt lista yfir fjár- og stóðréttir haustið 2010 á vef sínum. Það er Ólafur Dýrmundsson ráðunautur sem hefur tekið listann saman. Heildarlistann yfir allar réttir á landinu má nálgast á vef Bændasamtakanna http://bondi.is/
 
Réttir í Borgarbyggð verða sem hér segir:
Kaldárbakkarétt í Kolbeinsstaðahreppi sunnudaginn 5. sept.
Fljótstungurétt í Hvítársíðu laugardaginn 11. sept.
Oddsstaðarétt í Lundarreykjadal miðvikudaginn 15. sept.
Brekkurétt í Norðurárdal sunnudaginn 19. sept.
Rauðsgilsrétt í Hálsasveit sunnudaginn 19. sept.
Hítardalsrétt í Hítardal mánudaginn 20. sept.
Grímsstaðarétt á Mýrum þriðjudaginn 21. sept.
Mýrdalsrétt þriðjudaginn 21. sept.
Svignaskarðsrétt mánudaginn 20. sept.
Þverárrétt í Þverárhlíð mánudaginn 20. sept.
 

Share: