Ráðstöfun frístundastyrks fyrir börn og ungmenni í Borgarbyggð

desember 10, 2025
Featured image for “Ráðstöfun frístundastyrks fyrir börn og ungmenni í Borgarbyggð”

Frístundastyrkurinn er 40.000 krónur  á ári fyrir börn og ungmenni á aldrinum 6-18 ára og 14.000 krónur á ári fyrir börn á aldrinum 0-5 ára sem hafa lögheimili í Borgarbyggð.  Styrkupphæðin ákvarðast við gerð fjárhagsáætlunar og gildir frá 1.janúar til og með 31.desember ár hvert.

Styrkinn er svo hægt að nýta til að lækka gjöld í skipulögðu íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi sem stundað er reglulega.

Nú þegar líður að áramótum eru forráðamenn barna og unglinga í Borgarbyggð hvattir til að nýta frístundastyrkinn fyrir árið 2025 áður en árið klárast.
Athugið að ónýttir styrkir flytjast ekki milli ára.

Nánari upplýsingar má finna hér 


Share: