Ráðstafanir vegna Kórónaveirunnar

febrúar 11, 2020
Featured image for “Ráðstafanir vegna Kórónaveirunnar”

Embætti landlæknis og sóttvarnarlæknir hafa lýst yfir óvissustigi í samráði við almannavarnadeild ríkislögreglustjóra vegna hinnar nýju kórónaveiru.

Starfsmenn heilsugæslustöðvar á Vesturlandi hafa fengið fræðslu um kórónaveiruna auk þess hefur verið fundið úrræði varðandi skoðunaraðstöðu og fyrir einangrun ef svo bæri að. 

Hvað er kórónaveira og hvernig smitast hún?

Kórónaveirur eru þekkt orsök kvefs en þær geta einnig valdið alvarlegri lungnabólgu og jafnvel dauða. Veiran sem um ræðir núna er áður óþekkt. Faraldsfræðilegar upplýsingar eru enn takmarkaðar og því er margt óljóst varðandi útbreiðslu sjúkdómsins. Það er ekkert bóluefni til gegn þessari veiru og því ekki hægt að bólusetja við henni.

Einkenni

Einkenni líkjast helst inflúensusýkingu, hósti, hiti, bein- og vöðvaverkir, þreyta o.s.frv. Veiran getur einnig valdið alvarlegum veikindum með neðri öndunarfærasýkingum og lungnabólgu, sem koma oft fram sem öndunarerfiðleikar á 4-8 degi veikinda.

Hvað get ég gert til að forðast smit?

  • Handþvottur og spritt er mikilvægast til að forðast smit. Einnig skal varast úðasmit.

Viðbrögð ef grunur er um að einstaklingur sé smitaður:

  • Hafa samband í síma 1700 til að fá ráðleggingar um til hvaða ráða skuli gripið.
  • Almennt er ekki ráðlagt að flytja einstaklinginn strax á heilbrigðisstofnun nema um alvarleg veikindi sé að ræða. 
  • Ef einstaklingur er grunaður um smit skal setja á hann sóttvarnagrímu til að hindra frekara smit. 
  • Ef einstaklingur er grunaður um smit skal einnig huga að sóttkví þeirra sem eru í nánast umhverfi og hafa skal samráð við fagaðila í síma 1700.
  • Hver og einn þarf að huga að smitleiðum og koma í veg fyrir að smit berist.

Almennar ráðleggingar um hreinlæti gilda og eru afar mikilvægar til að draga úr dreifingu veirunnar:

  • Endurtekinn handþvottur og notkun handspritts reglulega.
  • Ef einstaklingur hóstar ber að halda fyrir munn/nef og þvo sér á eftir.
  • Ef mögulegt er, forðast að vera í < 2 metra fjarlægð frá hugsanlega sýktum einstaklingi.
  • Notkun hanska getur hjálpað til.

Borgarbyggð hvetur íbúa til þess að fylgjast með stöðu mála inn á síðu Landlæknis:

Spurningar og svör varðandi kórónaveiruna


Share: