Í ljósi aðstæðna vegna COVID-19 hefur verið ráðist í eftirfarandi ráðstafanir í íþróttamannvirkjum sveitarfélagsins.
Nemendur leik-, grunn og framhaldsskóla.
- Kennsla í íþróttum og sundi fellur niður á meðan samkomubann stendur yfir hjá nemendum leik-, grunn- og framhaldsskóla.
Íþróttaæfingar og íþróttahús
- Allar æfingar falla niður hjá börnum á leik- og grunnskólaaldri til mánudagsins 23. mars líkt og tilmæli frá ÍSÍ 15. mars s.l . segja til um.
Á meðan verður unnið að nýjum útfærslum fyrir þennan hóp. - Íþróttaæfingar 17 ára og eldri verða útfærðar í samvinnu við UMSB, þó verður ekki hægt að nota búningsklefa. Íþróttafélögin verða að fylgja þeim takmörkunum og tilmælum sem gilda næstu fjórar vikurnar. Þessi útfærsla verður unnin í samvinnu við UMSB
Sundlaugar Borgarbyggðar
- Sundlaug er opin en staðan er reglulega metin um hvort hægt sé að halda úti opnun miðað við aðgerðir sem takmarkaða fjölda í sundklefa hverju sinni.
- Búningsklefar á efri hæðinni eru eingöngu opnir fyrir sundlaugargesti en vegna stærðar búningsklefa er einungis þriðji hver skápur notaður
- Rennibrautir eru lokaðar.
Búningsklefar
- Búningsklefar á neðri hæðinni, nr. 2 og nr. 4 eru opnir fyrir iðkendur í þreksal en einungis þriðji hver skápur í notkun.
- Klefi nr. 2 – fyrir karla er opin fyrir þá sem ætla í þrek og sund.
- Klefi nr. 4 – fyrir konur er opin fyrir þá sem ætla í þrek og sund.
Þreksalur og hópatímar
- Þreksalur er opinn en staðan er metin reglulega um hvort hægt sé að halda úti opnun miðað við aðgerðir með takmarkaðan fjölda á svæðinu hverju sinni.
- Búningsklefar fyrir iðkendur í þreksal: sjá upplýsingar hér fyrir ofan undir Búningsklefar.
- Þeir aðilar sem ætla bara í þreksal koma tilbúnir og gera aðrar ráðstafanir vegna sturtuferða.
- Allir iðkendur þurfa að þrífa snertifleti tækja fyrir og eftir notkun.
- Iðkendur eiga að viða fjarlægðarmörk sem landlæknir hefur sett.
Sótthreinsiþrif í mannvikjunum hafa verið aukin, sérstaklega snertifletir.
- Starfsfólk þvær með sápu öll tæki einu sinni á dag í þreksal.
- Sprittbrúsar eru við pappír standa á vegg.
- Úðabrúsar til að þrífa tæki eru til staðar, einnig úðabrúsar með sápuvatni.
- Gólf á sundlaugasvæði sótthreinsað daglega.
- Búningsklefar sótthreinsaðir daglega.
- Skápar og lyklar sótthreinsaðir reglulega yfir daginn.
- Sprittbrúsi í afgreiðslu, skjár og posi sótthreinsað reglulega.
Borgarbyggð hvetur íbúa til þess að sýna ábyrgð, gæta að hreinlæti og hafa í huga ráðleggingar Landlæknis um að handþvottur sé besta forvörnin.
Auk þess vill sveitarfélagið biðja alla þá sem finna til flenskueinkenna eða hafa verið í samskiptum við smitaða einstaklinga um að mæta ekki í íþróttamannvirkin.