Póst- og símkerfi Borgarbyggðar komið í lag

janúar 8, 2021
Featured image for “Póst- og símkerfi Borgarbyggðar komið í lag”

Greint var frá því í gær að bilun væri í póst- og símkerfi Borgarbyggðar. Vegna þessa var erfitt að ná samband við starfsmenn og skiptiborð sveitarfélagsins.

Viðgerð er nú lokið og póst- og símkerfi Borgarbyggðar er komið í lag.

Íbúar eru beðnir velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.


Share: