Opnun tilboða í viðbyggingu GB

mars 8, 2018
Featured image for “Opnun tilboða í viðbyggingu GB”

Tilboð í viðbyggingu og endurbætur á Grunnskólanum í Borgarnesi voru opnuð hjá Ríkiskaup þriðjudaginn 6. mars sl. Einungis eitt tilboð barst í verkið. Það var frá Eiríki J. Ingólfssyni húsasmíðameistara í Borgarnesi. Tilboðið hljóðaði upp á 818,5 m.kr. Kostnaðaráætlun verksins var upp á 689,6 m.kr. Tilboðið var því 18,7 % yfir kostnaðaráætlun. Tilboðið verður tekið til skoðunar og lagt mat á niðurstöðuna á næstu dögum.

 


Share: