Opinn kynningarfundur
Umhverfis – skipulags – og landbúnaðarnefnd Borgarbyggðar boðar til opins kynningarfundar um breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010 – 2022. Svæðið sem hér um ræðir er það sem í Aðalskipulagi Borgarbyggðar er nefnt miðsvæði Borgarness, M, og snýr að lóðunum Borgarbraut 55 – 59.
Fundurinn verður haldinn í Hjálmakletti miðvikudaginn 2. nóvember n.k og hefst hann kl. 20:00 og eru allir velkomnir.
Sveitarstjóri