Opinn dagur í Borgarbyggð á vegum atvinnu- og markaðsnefndar

janúar 29, 2009

Atvinnu- og markaðsnefnd Borgarbyggðar mun standa fyrir opnum degi föstudaginn 6. febrúar 2009 í Menntaskóla Borgarfjarðar. Þar verða saman komnir ýmsir aðilar sem lagt geta fólki og fyrirtækjum lið með upplýsinga- og ráðgjöf af ýmsu tagi.

Eftirfarandi er haft eftir Þór Þorsteinssyni formanni atvinnu- og markaðsnefndar:
“Ætlunin með þessum degi er m.a. að fá fólk saman og virkja þá krafta sem í okkur búa. Á síðustu mánuðum hafa gengið yfir miklar breytingar og ákveðin óvissa myndast en dagur sem þessi er m.a. til að fólk geti leitað svara við mörgum þeim spurningum sem kunna að hafa vaknað um réttindi, stöðu og framtíðarmöguleika.
Þó að óvissan sé mikil eru vissulega tækifæri sem felast í öllum breytingum og er það ekki síður ætlun þessarar samkomu að nálgast einhver þeirra. Margir luma á góðum hugmyndum til atvinnusköpunar sem einmitt núna munu eiga meiri möguleika á að verða að veruleika og á staðnum verða aðilar sem geta lagt fólki lið, svo sem með rekstrarráðgjöf og jafnvel styrkjum.
Það stoðkerfi sem við höfum hér á svæðinu er umfangsmeira en margir gera sér grein fyrir og er opinn dagur gott tækifæri til að kynna sér hvað stendur til boða. Dagurinn er ætlaður öllum; fólki í atvinnuleit, fólki með örugga vinnu, fólki sem vill bæta við sig færni og þekkingu, frumkvöðlum og síðast en ekki síst forvitnu fólki,”
 
 

Share: