Opinn íbúafundur með innviðaráðherra

ágúst 11, 2025
Featured image for “Opinn íbúafundur með innviðaráðherra”

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra boðar til opinna íbúafunda í ágúst í öllum landshlutum til að eiga samráð um málaflokka ráðuneytisins undir yfirskriftinni Fjárfest í innviðum til framtíðar. Tilgangur fundanna er að kalla eftir sjónarmiðum íbúa og sveitarstjórnarfólks um málaflokka ráðuneytisins – samgöngur, sveitarstjórnar- og byggðamál og fjarskipti og stafræna innviði.

Fundirnir eru opnir öllum en hægt er að skrá sig á einstaka fundi á upplýsingasíðu Stjórnarráðsins. Fundir eru alla jafna haldnir síðdegis og boðið upp á kaffiveitingar á hverjum stað.

Einnig hægt að skrá sig á fundinn á Vesturlandi með því að smella hér.


Share: