Opið hús á Hnoðrabóli

maí 29, 2013
Í dag, miðvikudaginn 29. maí ætla börnin á Hnoðrabóli í Reykholtsdal að bjóða öllum velunnurum skólans á opið hús og myndlistarsýningu frá kl. 14.00 til kl. 15.45. Gaman væri að sjá sem flesta foreldra, systkini, ömmur, afa, frænkur, frændur og aðra sveitunga sem hafa tök á því að líta inn og eiga góða stund með okkur og þiggja kaffiveitingar.
Útskrift og fjör verður einnig fyrir hádegi í dag, þá útskrifar leikskólinn elstu börnin, veitir þeim viðurkenningu fyrir skemmtilega og góða samveru með uppákomu og fjöri.
Starfsfólk Hnoðrabóls
 

Share: