Laust starf leikskólakennara í leikskólanum Uglukletti

desember 2, 2019
Featured image for “Laust starf leikskólakennara í leikskólanum Uglukletti”

OKKUR Í  LEIKSKÓLANUM UGLUKLETTI Í BORGARNESI VANTAR LEIKSKÓLAKENNARA í 100% starf 

Við erum 65 börn og 20 fullorðnir sem vantar leikskólakennara til starfa hjá okkur. Sá hinn heppni fær að njóta margra forréttinda í sinni vinnu. Hann fær meðal annars að vera mikið úti og njóta frábærrar náttúru, fær að skapa og nýta hæfileika og styrkleika sína út í hið óendalega. Í Uglukletti byggir leikskólastarfið á hugmyndafræði Jákvæðrar sálfræði þar sem meðal annars er horft til hugmynda Mihaly Csikszentmihalyi um Flæði auk kenninga um sjálfræði barna. Nánari upplýsingar eru á heimasíðu skólans http://ugluklettur.leikskolinn.is/

 Menntunar- og hæfniskröfur leikskólakennara:

  • Leikskólakennaramenntun
  • Góð færni í mannlegum samskiptum
  • Sjálfstæð vinnubrögð
  • Jákvæðni, frumkvæði, áhugi  og metnaður

 Helstu verkefni:

  • Leikskólakennari vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara og stefnu sveitarfélagsins

 Umsóknarfrestur er til 17. desember 2019

  • Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga  við viðkomandi stéttarfélag. .
  •  Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.Til greina kemur að ráða starfsmenn með aðra uppeldismenntun og/eða reynslu. 
  • Ráðið verður í starfið frá og með 1. janúar 2020 eða eftir nánari samkomulagi.

 Umsóknum skal skilað til Kristínar Gísladóttur leikskólastjóra sem veitir nánari upplýsingar í síma 4337150, netfang; ugluklettur@borgarbyggd.is.

 

 

OKKUR Í  LEIKSKÓLANUM UGLUKLETTI Í BORGARNESI VANTAR LEIKSKÓLAKENNARA í 100% starf

 


Share: