Nýtt gólfefni komið á salinn í íþróttahúsinu á Varmalandi

nóvember 22, 2007
Verið er að ljúka parketlagningu í sal íþróttamiðstöðvarinnar á Varmalandi. Einnig hefur parket verið lagt á neðri hluta salarins í félagsheimilinu Þinghamri. Hafist verður nú handa við að lakka og línumerkja gólfið. Þrátt fyrir að verkið sé unnið á þessum tíma árs þá hefur íþróttakennsla gengið vel enda búið að vera einstaklega gott veður og því mikið verið hægt að vera úti við æfingar, hlaup og gönguferðir.
Íþróttakennarar skólans hafa notað útisundlaugina mjög mikið og næsta víst að það verða vel synd grunnskólabörnin í Varmalandsskóla í vor.
Styttist nú í að verkinu ljúki og verður þá heldur betur búið að gera andlitslyftingu á salnum með fjaðrandi og glæsilegu parketi.
 
Mynd með frétt: Indriði Jósafatsson
 

Share: