Nýtt fréttabréf í dreifingu í dag

júní 5, 2007
Íbúar Borgarbyggðar fá nýtt fréttabréf sveitarfélagsins borið í hús til sín í dag. Að venju kennir þar ýmissa grasa. Meðal annars er sagt er frá þjónustukönnun Borgarbyggðar, gangi mála við Menntaskólann, landnemaskólanum, vinnuskólanum, aðalskipulagsgerð og fleira. Þá eru þar fastir liðir eins og “sveitarstjórnarmaðurinn” sem að þessu sinni er Finnbogi Rögnvaldsson og “fréttaritari úr sveitinni” er Guðrún Björk Friðriksdóttir frá Skálpastöðum í Lundarreykjadal. Þá er haldið áfram að kynna fagnefndir sveitarfélagsins og nú er það tómstundanefndin. Fréttabréfið má nálgast á rafrænu formi hér.
 

Share: