Nýverið var lokið við að setja upp hlaupakött eða aparólu við leikvöllinn sem er við Hrafnaklett í Bjargslandi í Borgarnesi. Tækið kemur frá Jóhanni Helga og co. og starfsfólk áhaldahúss hafði umsjón með uppsetningu tækisins.
Með aparólu og nýjum ærslabelg á Wembley hefur afþreyingarmöguleikum verið fjölgað fyrir börn á öllum aldri í Bjargslandi, sem hefur verið langþráður draumur margra.
Þessi nýju tæki hafa vonandi hvetjandi áhrif til heilbrigðrar útiveru og hreyfingar fyrir íbúa og gesti.