Nýr skólastjóri Grunnskóla Borgarfjarðar

apríl 13, 2018
Featured image for “Nýr skólastjóri Grunnskóla Borgarfjarðar”

Helga Jensína Svavarsdóttir hefur verið ráðin skólastjóri Grunnskóla Borgarfjarðar.  Helga Jensína er grunnskólakennari að mennt. Hún hefur starfað sem kennari við Andakílsskóla á Hvanneyri, við Ingunnarskóla í Grafarvogi, Grunnskólann í Borgarnesi og frá árinu 2012 við Grunnskóla Borgarfjarðar. Helga Jensína er einnig sundkennari og hefur kennt ungbarnasund og verið með sundnámskeið og sundþjálfun í Borgarnesi. Hún hefur verið í námsleyfi sl. vetur og er að ljúka meistaragráðu í uppeldis- og menntunarfræði með áherslu á stjórnun menntastofnana.

Tveir umsækjendur voru um stöðuna en umsóknarfrestur rann út 26. mars sl. Einnig sótti Ingibjörg Adda Konráðsdóttir, deildarstjóri og staðgengill skólastjóra Grunnskóla Borgarfjarðar um stöðuna.


Share: