Nýr kynningarfulltrúi hefur störf

september 4, 2007
Umhverfisfulltrúi Borgarbyggðar, Björg Gunnarsdóttir, hefur tekið við starfi kynningarfulltrúa í hlutastarfi af Hólmfríði Sveinsdóttur, sem nú hefur hætt störfum hjá Borgarbyggð. Í starfi kynningarfulltrúa felst m.a. umsjón heimasíðu.
Björg hefur haft aðsetur á skrifstofu Borgarbyggðar í Reykholti og verður svo áfram. Starfhlutfall hennar verður nú 100% í stað 50% og skiptist þannig að umhverfisfulltrúastaðan er 60% og kynningarfulltrúastaðan 40%.
Linda Björk Pálsdóttir, fjármálastjóri Borgarbyggðar, tekur við af Hólmfríði sem starfsmaður atvinnu- og markaðsnefndar.
 

Share: