Nýr forstöðumaður framkvæmdasviðs ráðinn hjá Borgarbyggð

október 19, 2007
Jökull Helgason, sem verið hefur verkefnisstjóri á framkvæmdarsviði Borgarbyggðar, hefur verið ráðinn forstöðumaður framkvæmdasviðs Borgabyggðar í stað Sigurðar Páls Harðarssonar sem lætur formlega af störfum þann 1. nóvember næstkomandi. Jökull var eini umsækjandinn um starfið.
Byggðaráð Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínum 17. október að ráða Jökul. Starf verkefnisstjóra á framkvæmdasviði Borgarbyggðar verður auglýst laust til umsóknar innan tíðar.

Share: