Út er kominn nýr bæklingur um fólkvanginn Einkunnir. Í honum er að finna upplýsingar um tilurð fólkvangsins, einkenni hans, skipulag og nýtingu. Á bakhliðinni er kort af svæðinu ásamt gönguleiðakorti.
Bæklinginn er hægt að nálgast í ráðhúsinu og á upplýsingamiðstöðvum.