Nýr samningur við HSS verktak um söfnun dýraleifa

janúar 29, 2021
Featured image for “Nýr samningur við HSS verktak um söfnun dýraleifa”

Skrifað hefur verið undir nýjan samning við HSS verktak um söfnun dýraleifa á lögbýlum til næstu 12 mánaða. Það var send verðfyrirspurn til nokkurra aðila og í kjölfarið samþykkt að semja við lægstbjóðanda.

Við endurskoðun á yfirstandandi tilraunaverkefni voru gerðar nokkrar breytingar á fyrirkomulaginu.

  • Gjaldskráin breytist þannig að öll lögbýli þar sem skráðar eru skepnur skv. upplýsingum frá Búnaðarstofu, greiða grunngjald kr. 25.000 og því til viðbótar bætist við gjald í samræmi við fjölda búfjár á hverju lögbýli, sauðfé, nautgripir, hross og hænsn. Sjá gjaldskrá hér.

  • Reynslan sýnir að ekki er möguleiki að sinna öllu sveitarfélaginu á einum degi. Því er gert ráð fyrir því í samningi að yfir veturinn séu dýraleifar sóttar á tveggja vikna fresti, og verktaka heimilt að svæðisskipta sveitarfélaginu eins og best hentar á tímabilinu 1. des – 31. mars.
  • Svæðisskipting verður með eftirfarandi hætti: Norðurárdalur, Borgarhreppur og vesturlínan verður tekin aðra vikuna, og aðrir hlutar sveitarfélagsins hina vikuna. Skiptingin tekur gildi 1. febrúar og verður því hirt á fyrrnefnda svæðinu þá viku.  Söfnun getur frestast vegna óveðurs eða ófærðar.

  • Hirðing fer fram vikulega á tímabilinu 1. apríl – 30. nóvember og þarf að gera ráð fyrir að söfnun taki tvo daga. Þannig hefst söfnun á þriðjudegi og lýkur á miðvikudegi.

  • Þjónustupantanir skulu berast gegnum skráningarhnapp á heimasíðu Borgarbyggðar eða með tölvupósti á netfangið dyraleifar@borgarbyggd.is fyrir  kl. 8:00 á þriðjudagsmorgni.

  • Mikilvægt er að hafa aðgengi að dýraleifum gott og í hæfilega stórum ílátum.

 Nánari upplýsingar veitir Halldór  Sigurðsson hjá HSS Verktak í  síma. 892-3044 og Hrafnhildur Tryggvadóttir hjá Borgarbyggð s. 433-7100.

 

 


Share: