Nýliðakvöld Slökkviliðs Borgarbyggðar 25. október

október 7, 2021
Featured image for “Nýliðakvöld Slökkviliðs Borgarbyggðar 25. október”

Vilt þú vera með okkur í liði?

Slökkvilið Borgarbyggðar leita að öflugum einstaklingum, 20 ára og eldri af öllum kynjum til að ganga til liðs við hópinn.

Lausar stöður í Borgarnesi, á Hvanneyri, í Reykholti og á Bifröst.

Kynningarkvöld á starfsemi slökkviliðsins verður mánudagskvöldið 25. október nk. kl 20:00 á slökkvistöðinni í Borgarnesi að Sólbakka 13-15. Þar verður hægt að sækja um og skrá sig í inntökuferli.

Frekari upplýsingar veitir Heiðar Örn Jónsson Varaslökkviliðsstjóri, heidarorn@borgarbyggd.is.

 


Share: