Ný hraðahindrun í Borgarnesi

september 7, 2007
Um þessar mundir er verið að vinna að gerð nýrrar hraðahindrunar á móts við
Tónlistarskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi. Það er HS verktak sem annast framkvæmdina. Um verður að ræða hellulagða hraðahindrun ásamt miðeyju á milli akreina.
Í framhaldinu munu fleiri hraðahindranir verða settar upp í Borgarbyggð.
Meðfylgjandi myndir voru teknar fimmtudaginn 6. september síðastliðinn.
(Myndir: Jökull Helgason, verkefnastj. framkvæmdasviðs, 2007)
 

Share: