Ný heimasíða Borgarbyggðar

september 12, 2019
Featured image for “Ný heimasíða Borgarbyggðar”

Á sveitarstjórnarfundi Borgarbyggðar 12. september 2019 var nýr vefur Borgarbyggðar opnaður.

Undirbúningur að nýrri heimasíðu hefur staðið yfir síðustu mánuði og misseri. Vefurinn er unninn með hliðsjón af ábendingum íbúa, kjörinna fulltrúa og starfsmanna sveitarfélagsins.

Við gerð nýju síðunnar var unnið út frá því að stytta leiðir að upplýsingum og gera síðuna aðgengilegri fyrir notendur ásamt því að bæta útlit hennar. Mikil vinna hefur átt sér stað við að yfirfara efnisinnihald síðunnar og gera upplýsingarnar aðgengilegri. Hægt er að þýða upplýsingar á síðunni með aðstoð þýðingarþjónustu Google (google translate).

Á nýja vefnum eru ýmsar nýjungar. Þar má nefna:

  • Einfalt er að rekja mál með því að leita eftir t.d. málsnúmeri (notið leitargluggann / stækkunarglerið sem er efst hægra megin á síðunni).
  • Íbúar geta nú óskað eftir viðtali við starfsfólk Borgarbyggðar í gegnum vefinn með því að smella á „Panta viðtal“ (staðsett lengst til hægri undir forsíðuborðanum).
  • Upplýsingar um skipulags- og byggingamál eru orðnar mun aðgengilegri en á fyrri vef.
  • Flestar umsóknir fara nú fram á rafrænan hátt í gegnum Þjónustugátt Borgarbyggðar.

Vinna við þróun síðunnar mun halda áfram á komandi vikum og mánuðum. Ef íbúar vilja koma ábendingum á framfæri um eitthvað sem má betur fara er tekið við þeim í gegnum hnappinn „Senda ábendingu“ sem er að finna bæði efst og neðst á síðunni.

Þjónustuaðili við gerð og hönnun heimasíðunnar er Stefna ehf.


Share: