Númerslausar bifreiðar

nóvember 24, 2020
Featured image for “Númerslausar bifreiðar”

Eigendum og umráðamönnum númerslausra bifreiða og annarra lausamuna er bent á að óheimilt er að láta slíka muni standa við götur, á almennum bílastæðum eða í almenningsrýmum.

Eftir þann 7. desember  n.k. mun Heilbrigðiseftirlit Vesturlands hefja álímingar á þessa muni ef veður leyfir og eru eigendur því hvattir til að fjarlægja þessa muni sem fyrst.

 


Share: