Íbúar geta nú bókað símtöl og viðtöl hjá ráðgjöfum og fulltrúum Borgarbyggðar beint í gegnum heimasíðuna. Tímabókunarhnappurinn, merktur „Bóka viðtal“, er staðsettur ofarlega, vinstra megin á vefnum.
Við hvetjum íbúa eindregið til að nýta sér þessa einföldu þjónustu.