Norðurljós – Ómar Örn sýnir í Safnahúsi

janúar 21, 2016
Nýhafið starfsár Safnahúss 2016 er helgað listrænni ljósmyndun í héraði og er fyrsta verkefnið í þeim anda sýning á ljósmyndum eftir Ómar Örn Ragnarsson sem er búsettur í Borgarnesi og rekur þar verslunina Tækniborg. Verður sýningin opnuð laugardaginn 23. janúar kl. 13.00.
 
Heiti sýningarinnar er Norðurljós og vísar það til myndefnisins, en myndirnar hefur Ómar tekið í Borgarnesi og nágrenni og segir Borgarnes vera afar vel í sveit sett til myndatöku af Norðurljósum. Af myndum hans má sjá að hann hefur næmt auga fyrir litbrigðum náttúrunnar og nær að kalla fram ævintýralega ljósadýrð á myndflötinn á þessum dimmasta tíma ársins.
Sýningin verður opin 13.00 – 16.00 á opnunardaginn og eftir það virka daga 13.00 – 18.00. Henni lýkur 26. febrúar.
 
Allir velkomnir!

 

Share: