Náttúran – lýðheilsuganga FI og UMSB

september 28, 2017
Featured image for “Náttúran – lýðheilsuganga FI og UMSB”

Síðasta lýðheilsuganga Ferðafélags Íslands og UMSB var farin undir yfirskriftinni Náttúran miðvikudaginn 27. september kl.17:00. Gengið var á Hafnarfjallið, upp að “steini”. Gengið var eftir gönguleið uppí hlíðar fjallsins. Var þátttaka góð en tilgangurinn með verkefninu er að hvetja fólk á öllum aldri til útivistar og hreyfingar í góðum félagsskap og efla þar með heilsu sína og lífsgæði.  Allar upplýsingar um verkefnið má finna á vef verkefnisins www.fi.is/lydheilsa


Share: