Minningarsýning um Bjarna á Laugalandi

október 2, 2014
Á laugardaginn kl. 13.00 verður opnuð í Safnahúsi Borgarfjarðar minningarsýning um Bjarna Helgason á Laugalandi (1928-2012). Sýningin er sett upp í tilefni af því að fjölskylda Bjarna hefur gefið myndasafn hans og ljósmyndabúnað til safnanna. Bjarni var garðyrkjubóndi á Laugalandi við Varmaland og brautryðjandi á sínu sviði. Hann var vel liðinn og mætur maður og tók virkan þátt í borgfirsku samfélagi, bæði með almennum félagsstörfum og þátttöku í stjórnmálum.
Eftirlifandi eiginkona Bjarna er Lea Kristín Þórhallsdóttir og börn þeirra eru fjögur: Helgi, Steinunn, Þórhallur og Sigrún. Sýningin um Bjarna er í anddyri bókasafns á efri hæð Safnahúss. Hún verður opin á laugardaginn kl. 13.00 – 17.00 en eftir það á opnunartíma bókasafns kl. 13.00 – 18.00 alla virka daga. Allir eru velkomnir á opnunina og boðið verður upp á veitingar og konfekt.

Share: