Menntaskóli Borgarfjarðar

ágúst 17, 2010
Föstudaginn 20. ágúst næstkomandi kl. 09.00 koma nýnemar við Menntaskóla Borgarfjarðar til starfa en þá hefst skólahald með sameiginlegum morgunverði nýnema og starfsfólks. Í framhaldi morgunverðarins fá nýnemar afhentar stundaskrár og fleiri gögn varðandi skólastarfið. Einnig fá nemendur afhentar fartölvur.
Eldri nemendur koma til starfa sama dag kl. 13.00 og fá afhentar stundaskrár, fartölvur og önnur tilheyrandi gögn.
 

Share: