Laust er til umsóknar embætti skólameistara við Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi. Skólinn býður upp á þriggja ára nám og fimm brautir með sjö námsleiðum : Opna braut, félagsfræðabraut, náttúrufræðibraut, íþróttabraut og starfsbraut. Lög um framhaldsskóla nr. 92/2008 fela framhaldsskólum aukna ábyrgð á skilgreiningu námsbrauta, þróun námsframboðs á mörkum skólastiga og fræðsluskyldu til 18 ára aldurs. Skólameistari gegnir því mikilvægu hlutverki í mótun skólastarfs.
Menntaskóli Borgarfjarðar var formlega stofnaður 4. maí 2006. Skólinn er einkahlutafélag og eru aðstandendur hans um 160 talsins.
Frá upphafi Menntaskóla Borgarfjarðar var lögð á það áhersla að skólinn færi ótroðnar slóðir í starfsháttum og yrði í fremstu röð framhaldsskóla í uppeldi og kennslu.
Gildi skólans eru: Sjálfstæði – Færni – Framfarir
Nánari upplýsingar um skólann má finna á www.menntaborg.is
Helstu verkefni:
- Veitir framhaldsskólanum forstöðu
- Sér um daglega stjórn og rekstur skólans
- Sér til þess að skólastarfið sé í samræmi við lög, reglugerðir, aðalnámskrá og önnur gildandi fyrirmæli á hverjum tíma
- Ber ábyrgð á gerð fjárhagsáætlunar og eftirfylgni hennar
- Hefur umsjón með gerð skólanámskrár og umbótastarfi innan skólans
Menntunar- og hæfniskröfur
- Uppfylla hæfiskilyrði laga, sem samþykkt hafa verið, um menntun og hæfni kennara og skólastjórnenda
- Kennsluréttindi
- Stjórnunar- og rekstrarreynsla
- Leiðtoga- og samskiptahæfni
- Reynsla af stefnumótunarvinnu
- Hæfileikar til nýsköpunar
- Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
Aðrar upplýsingar
Stjórn Menntaskóla Borgarfjarðar ræður skólameistara. Æskilegt er að skólameistari hefji störf í ársbyrjun 2020. Laun skólameistara eru samningsatriði. Skólameistari skal búa í Borgarbyggð.
Nánari upplýsingar veita Hrefna B. Jónsdóttir, formaður stjórnar MB (hrefna@ssv.is) í síma 863-7364 og Ari Eyberg (ari@intellecta.is) í síma 511-1225. Umsóknarfrestur er til og með 23. september 2019. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf, þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi í starfið. Gætt er trúnaðar varðandi fyrirspurnir og umsóknir.