Menningarsjóður Borgarbyggðar – styrkumsóknir – 2017-10-18

október 18, 2017
Featured image for “Menningarsjóður Borgarbyggðar – styrkumsóknir – 2017-10-18”

Stjórn Menningarsjóðs Borgarbyggðar auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum

Tilgangur sjóðsins er að efla menningu í Borgarbyggð og er sérstök rækt lögð við grasrót í menningarlífi. Lögð er áhersla á að styrkja einstaklinga og félagasamtök í Borgarbyggð. Styrkir eru verkefnatengdir.

Umsókninni þarf að fylgja sundurliðuð kostnaðarætlun fyrir verkefnið ásamt greinargerð. Fyrir árslok þarf að afhenda sjóðsstjórn stutta skýrslu um nýtingu styrksins.

Hægt er að sækja um rafrænt í gegn um íbúagátt. Einnig má sækja um á sérstöku umsóknareyðublaði sem finna má á heimasíðu Borgarbyggðar www.borgarbyggd.is  en þar er einnig að finna úthlutunarreglur sjóðsins.

Umsóknir skulu berast Ráðhúsi Borgarbyggðar (borgarbyggd@borgarbyggd.is ), Borgarbraut 14, í síðasta lagi miðvikudaginn 25. Október n.k.

Ef umsækjandi óskar eftir að fá gögn endursend skal hann taka það sérstaklega fram. Nánari upplýsingar veitir Kristján Gíslason netf. kristjangisla@borgarbyggd.is eða í s: 433-7100.

 

F.h stjórnar Menningarsjóðs Borgarbyggðar

Vilhjálmur Egilsson.

 


Share: