Menningarsjóður Borgarbyggðar – auglýsing eftir umsóknum.

febrúar 11, 2016
Stjórn Menningarsjóðs Borgarbyggðar auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum
Tilgangur sjóðsins er að efla menningu í Borgarbyggð og er sérstök rækt lögð við grasrót í menningarlífi. Lögð er áhersla á að styrkja einstaklinga og félagasamtök. Styrkir eru verkefnatengdir.
Umsókninni þarf að fylgja sundurliðuð kostnaðarætlun fyrir verkefnið ásamt greinargerð. Fyrir árslok þarf að afhenda sjóðsstjórn stutta skýrslu um nýtingu styrksins.
Hægt er að sækja um rafrænt. Úthlutunarreglur og umsóknareyðublað má finna á vef Borgarbyggðar, www.borgarbyggd.is
Umsóknir skulu berast til Kristjáns Gíslasonar, Ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, í síðasta lagi föstudaginn 4. mars 2016.
Ef umsækjandi óskar eftir að fá gögn endursend skal hann taka það sérstaklega fram.
Stjórn Menningarsjóðs Borgarbyggðar.
 

Share: