Menningarsjóður Borgarbyggðar – 2015-02-12

febrúar 12, 2015
Stjórn Menningarsjóðs Borgarbyggðar auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum
Tilgangur hans er að efla menningu í Borgarbyggð og er sérstök rækt lögð við grasrót í menningarlífi. Lögð er áhersla á að styrkja einstaklinga og félagasamtök. Styrkir eru verkefnatengdir.
Umsókninni fylgi sundurliðuð kostnaðarætlun fyrir verkefnið ásamt greinargerð. Fyrir árslok afhendist sjóðsstjórn skýrsla um nýtingu styrksins.
Hægt er að sækja um rafrænt, úthlutunarreglur og umsóknareyðublað má finna á vef Borgarbyggðar, www.borgarbyggd.is
 
Umsóknir skulu berast til Emblu Guðmundsdóttur þjónustufulltrúa, Ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, í síðasta lagi laugardaginn 1. mars 2015.
Ef umsækjandi óskar eftir að fá gögn endursend skal hann taka það sérstaklega fram.
 
 
 

Share: