MENNINGARSJÓÐUR BORGARBYGGÐAR 2004-01-19

janúar 19, 2004
Stjórn Menningarsjóðs Borgarbyggðar auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Sjóðurinn hefur það hlutverk að styrkja menningarmál í Borgarbyggð.
Æskilegt er að með umsókninni fylgi bókhaldsuppgjör síðasta árs, eða starfsárs, og áætlun um nýtingu styrksins ásamt greinar­gerð. Að loknu starfsári afhendist sjóðsstjórn greinargerð um nýtingu styrksins.
Umsóknir skulu berast forstöðumanni Fræðslu- og menningar­sviðs Borgarbyggðar, Borgarbraut 11, 310 Borgarnesi, í síðasta lagi 20. febrúar n.k.
Ath! Ekki verður tekið við umsóknum í tölvupósti.
 

Share: