ÚTHLUTUN STYRKJA ÚR
MENNINGARSJÓÐI BORGARBYGGÐAR
ÁRIÐ 2006
Stjórn Menningarsjóðs Borgarbyggðar auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Sjóðurinn hefur það hlutverk að styrkja menningarmál í Borgarbyggð.
Æskilegt er að með umsókninni fylgi bókhaldsuppgjör síðasta árs eða starfsárs, ef það á við, og áætlun um nýtingu styrksins ásamt greinargerð. Að loknu starfsári afhendist sjóðsstjórn greinargerð um nýtingu styrksins.
Umsóknir berist forstöðumanni fræðslu- og menningarsviðs, Borgarbraut 11, 310 Borgarnesi, í síðasta lagi 27. febrúar 2006.
Úthlutun fer fram á fundi menningarmálanefndar 1. mars 2006.
Ath! Ekki verður tekið við umsóknum í tölvupósti.
Stjórn Menningarsjóðs Borgarbyggðar