Menningarsjóður Borgarbyggðar auglýsir eftir umsóknum

september 3, 2020
Featured image for “Menningarsjóður Borgarbyggðar auglýsir eftir umsóknum”

Tilgangur sjóðsins er að efla menningu í Borgarbyggð og er sérstök rækt lögð við grasrót í menningarlífi. Lögð er áhersla á að styrkja einstaklinga og félagasamtök í Borgarbyggð.

Umsókninni þarf að fylgja sundurliðuð kostnaðaráætlun fyrir verkefnið ásamt greinargerð.

Styrkþegar síðasta árs eru minntir á að skila inn skýrslu um framgang og lok verkefnis fyrir næstu styrkveitingu. Skýrsluskil eru skilyrði fyrir styrkveitingu til nýrra verkefna.

Stjórnin hvetur umsækjendur til að kynna sér reglur sjóðsins áður en umsókn er lögð inn.

Sótt er um rafrænt í gegnum þjónustugáttina inn á borgarbyggd.is.

Umsóknarfrestur er til 21. september n.k.

Nánari upplýsingar veitir María Neves, á netfangið maria.neves@borgarbyggd.is eða í síma 433-7100.


Share: