Menningarsjóður Borgarbyggðar auglýsir eftir umsóknum

mars 10, 2020
Featured image for “Menningarsjóður Borgarbyggðar auglýsir eftir umsóknum”

Tilgangur sjóðsins er að efla mennigu í Borgarbyggð og er sérstök rækt lögð við grasrót í menningarlífi. Lögð er áhersla á að styrkja einstaklinga og félagasamtök í Borgarbyggð. Styrkir eru verkefnatengdir.

Umsókninni þarf að fylgja sundurliðuð kostnaðaráætlun fyrir verkefnið ásamt greinargerð.

Stjórnin hvetur umsækjendur til að kynna sér reglur sjóðsins áður en umsókn er lögð inn. Styrkþegar síðasta árs eru minntir á að skila inn skýrslu um framgang og lok verkefnis fyrir næstu styrkveitingu. Skýrsluskil eru skilyrði fyrir styrkveitingu til nýrra verkefna.

Sótt er um rafrænt í gegnum þjónustugáttina inn á borgarbyggd.is

Umsóknir skulu berast í síðasti lagi mánudaginn 30. mars n.k.

Nánari upplýsingar veitir María Neves, maria.neves@borgarbyggd.is eða í síma 433-7100.


Share: