Menningarráð Vesturlands – styrkir 2012

nóvember 8, 2011
Menningarráð Vesturlands hefur nú opnað umsóknarvef fyrir styrki komandi árs.
Umsóknarfrestur er til og með 10. desember 2011.
Umsækjendur geta verið einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki stofnanir og sveitarfélög á Vesturlandi.
Umsóknir eru rafrænar, á heimasíðu Menningarráðs Vesturlands undir liðnum styrkveitingar. Starfsmaður Menningarráðs Vesturlands Elísabet Haraldsdóttir veitir upplýsingar í síma 4332313. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið menning@vesturland.is
 
Styrkþegar frá síðasta ári þurfa að vera búnir að senda inn lokaskýrslu samkvæmt samningi til þess að geta sótt um annan styrk fyrir árið 2012.
 
Nýr menningarsamningur er einnig á heimasíðunni og fleiri upplýsingar er varða umsóknirnar.
Með samningnum er styrkveitingum ríkis og sveitarfélaga á Vesturlandi til menningarstarfs beint í einn farveg til að efla slíkt starf á Vesturlandi og gera það sem sýnilegast.
Menningarráð Vesturlands hefur ákveðið að árið 2012 hafi þau verkefni forgang sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða.
 
Verkefni sem hafa skapað sér sérstöðu og efla samstarf í menningarlífi á Vesturlandi.
 
Verkefni sem efla skapandi greinar sem sjálfstæðan atvinnuveg.
 
Verkefni sem stuðla að listrænu samstarfi og auka fjölbreytileika í menningartengdri ferðaþjónustu.
 
Verkefni sem stuðla að því að listamenn af Vesturlandi sýni afrakstur starfa sinna á Vesturlandi.
 
Verkefni sem leiða til samstarfs við önnur lönd á menningarsviðinu.
 

Share: